10.05.1975
Efri deild: 84. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3797 í B-deild Alþingistíðinda. (2935)
100. mál, sérkennslumál
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Af því að það er rólegt í þessari hv. þd. núna, þá held ég að ég segi nokkur orð um þessa till., bíði ekki eftir því að hún fari til n. og komi hér aftur til umr.
Það er af sérstöku tilefni aðallega sem ég kveð mér hér hljóðs, en í leiðinni vildi ég lýsa yfir fyllsta stuðningi við þetta ágæta mál. Það væri gott ef hægt væri að bæta fyrir fyrri syndir okkar í þessum efnum og vanrækslu fjölda ára varðandi sérkennslu afbrigðilegra barna í grunnskólum landsins, og þá alveg sérstaklega, eins og sagt er í till., í skólum landsbyggðarinnar.
Ég held að það sé gott að fá þessa till. fram til áherslu í kjölfar grunnskólalaganna. Sannleikurinn er sá að þau veittu fyrst möguleika og svigrúm til sérkennslu af þessu tagi, einkanlega í hinum smærri skólum.
Í öllum umr. um grunnskólafrv. hér á Alþ. gleymdist þetta ærið oft hjá allt of mörgum. En einmitt í ljósi þessara möguleika auk margs annars jákvæðs studdi ég það frv. og við aðrir, sem hér voru með, heilshugar. Áður var öll slík kennsla við hina smærri skóla hrein sjálfboðavinna. Sjálfboðavinna getur verið ágæt en auðvitað fór hún í ýmsan veg, var mikil eða lítil eftir atvikum því að þarna var vitanlega eftir áhuganum einum saman farið.
En ég vil benda á það hér að þótt við höfum samþ. þessi lög, þá er framkvæmdahliðin eftir og því full ástæða til þess að ýta vel á eftir því, eins og þessi till. gerir ráð fyrir. En í sambandi við þessa sérstöku till. vil ég aðeins geta þess hér að Styrktarfélag vangefinna á Austurlandi fór fram á það í sumar að hæstv. menntmrh. skipaði nefnd þar eystra skv. heimild í grunnskólal. til að athuga þessi mál, sérkennslumálin, sérstaklega. Við í stjórn Styrktarfélagsins vorum mjög ánægð með niðurstöður af þessum óskum okkar til hæstv. ráðh. Sú nefnd hefur í samráði við rn. hans unnið mjög gott starf, og nú liggur í raun fyrir ákveðin till. um bráðabirgðalausn á brýnustu vandamálunum varðandi sérþarfir seinþroska nemenda. Það hefur sem sagt verið ákveðið að komið verði upp sérdeild við Nesjaskóla í Austur-Skaftafellssýslu næsta vetur fyrir seinfæra nemendur. Ég tel að það væri rétt og veit að það verður gert — að hafa þetta starf þessarar nefndar og niðurstöður hennar til hliðsjónar þegar verður farið að framkvæma eftir þessari þáltill. Ég þykist vita að rn. mun gera það. En þótt hæstv. ráðh. sé ekki hér viðstaddur að vísu, þá vil ég hér og nú þakka hæstv. menntmrh. fyrir sérstaklega ágæt viðbrögð og jákvæða niðurstöðu og ákvörðun í þessu máli. Ég veit einnig, að þessi ákvörðun hans verður mjög mikilvæg fyrir þá aðra sem þurfa að sinna svipuðum vandamálum annars staðar í öðrum kjördæmum þar sem þessi mál hafa verið í miklum ólestri. — Þetta vildi ég aðeins taka fram hér nú þegar þessi till. kemur hér til umr.