10.05.1975
Neðri deild: 82. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3801 í B-deild Alþingistíðinda. (2959)

258. mál, Viðlagatrygging Íslands

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Með l. nr. 4 frá 27, mars 1973 var Viðlagasjóður stofnaður, en hlutverk hans er að bæta tjón vegna eldgossins í Vestmannaeyjum og var tekjuöflun við það eitt miðuð. Eftir snjóflóðin í Neskaupstað kom upp svipuð staða, stórtjón var orðið, atvinnulíf heils bæjarfélags lá í rústum. Stjórnvöld tóku málið upp á sína arma á sama grundvelli og Vestmannaeyjatjónið og Alþ. samþykkti lög þar sem Viðlagasjóði er falið að bæta þessi tjón og fleiri, en fjár aflað með hækkun á söluskatti. Stjórnvöld og Alþ. hafa því ótvírætt sýnt að fullur vilji er fyrir hendi að bæta slík áföll.

Mér var þó ljóst, þrátt fyrir ofangreinda afgreiðslu þessara mála, að nauðsynlegt er að við séum betur undir það búnir að mæta slíkum tjónum. Sú aðferð að setja lög um bætur og fjáröflun í hvert sinn er tjón ber að höndum er afar seinvirk og þung í vöfum. Auk þess er hætt við að einstaklingur, sem einn og sér verður fyrir tjóni af völdum náttúruhamfara, eigi ekki eins greiðan aðgang að fá bætur á þessum grundvelli og þegar stærri atburðir gerast, en tjón hans er þó jafntilfinnanlegt. Ég ákvað því að skipa n. til þess að gera till. um þessi mál og með bréfi 30. des. á s. l. ári skipaði ég þá Ásgeir Ólafsson forstjóra, Benedikt Sigurjónsson hæstaréttardómara og Bjarna Þórðarson tryggingafræðing í n. sem fékk það hlutverk, eins og í skipunarbréfinu segir, „að gera till. um fyrirkomulag skyldutrygginga er bæti tjón á húseignum og lausafé af völdum náttúruhamfara, svo sem jarðskjálfta, eldgosa, snjóflóða, skriðufalla, flóða og ofviðra, og semja frv. til l. um slíkar tryggingar“. Þetta frv. liggur hér fyrir.

Tilgangurinn með því að koma á fót viðlagatryggingu þeirri er frv. gerir ráð fyrir er sá að við verðum fyrir fram viðbúnir að mæta hugsanlegum áföllum af völdum náttúruhamfara og að um leið verði tryggt að allir þegnar þjóðfélagsins sitji við sama borð í þessu efni. Frv. þetta gerir ráð fyrir því að sett verði á fót stofnun er nefnist Viðlagatrygging Íslands og skal hún tryggja gegn tjóni af völdum þeirra hamfara sem ég nefndi áðan, að undanskildum ofviðrum, en n. taldi ekki rétt að taka það inn í þessa tryggingu vegna hinna mörgu vandamála sem kynnu að koma upp í sambandi við skilgreiningu á slíkum tjónsatburðum, enda munu slíkar tryggingar orðnar allalmennar einar sér eða sem liður í húseigendatryggingu.

Viðlagatryggingin er fyrst og fremst trygging er bætir meiri háttar tjón. Tjónauppgjör á því ekki að vera daglegur viðburður, heldur vonandi undantekningartilfelli. Eigin áhætta hinna tryggðu verður að vera allhá og í 7. gr. frv. er gert ráð fyrir að hún verði 6% og ekki bætist tjón undir 100 þús. kr.

Tekjuöflun samkv. þessu frv. á að fara fram á þann hátt að innheimt verði vaxtaiðgjöld af þeim verðmætum sem tryggð eru, og það er lagt til að iðgjaldstaxtinn verði 0.250/00. Til samanburðar má geta þess að iðgjaldstaxti hjá tryggingafélögunum fyrir jarðskjálftatryggingu eingöngu er frá 10/00 upp í 2.500/00 eftir stærð húsa og aðstæðum. Það er því augljóst, að iðgjaldi er mjög stillt í hóf. Þess ber og að geta að þegar tryggingasjóður stofnunarinnar hefur náð ákveðinni upphæð, þ.e. 20/00 af vátryggingarverðmætinu, þá lækkar þessi iðgjaldataxti um helming þannig að iðgjaldið fellur alveg niður þegar upphæð hans hefur náð 30/00 eða 1.8 milljörðum kr. miðað við áætluð tryggingaskyld verðmæti í dag sem talið er að muni vera um 600 milljarðar kr.

Þá má nefna mjög veigamikið atriði um framkvæmd tryggingarinnar, það að hagnýta tryggingakerfi starfandi vátryggingafélaga og að vátryggingafélögin sjái um innheimtu iðgjalds til Viðlagatryggingarinnar um leið og þau innheimta brunatryggingariðgjald. Þetta verður að teljast mjög hagkvæmt og auðvelt í framkvæmd. Vátryggingafélögin sjá á sama hátt um uppgjör á tjónum hvert við sinn viðskiptamann eins og um brunatjón væri að ræða. Að sjálfsögðu hefur stjórn stofnunarinnar yfirumsjón með þessari starfsemi, en ætlast er til að samið verði við Seðlabanka Íslands um vörslu sjóða og bókhald fyrir stofnunina og verður því komist hjá að ráða starfsfólk og hefur að sjálfsögðu verulegan sparnað í för með sér.

Áætlað er að heildarfjárhæð þeirra verðmæta, sem trygging þessi nær til, verði, eins og ég sagði áðan, 600 milljarðar miðað við verðlag í dag. Hámarksbætur, sem tryggingu er ætlað að ráða við, eru 60/00 eða 3 milljarðar og Viðlagatryggingin ber sjálf fyrstu 20/00 eða 1.2 milljarð í hverju tjóni, en það sem umfram er endurtryggir ríkissjóður. Þá er gert ráð fyrir að viðlagatryggingin leiti endurtryggingar hjá tryggingafélögum, innlendum eða erlendum, á hluta af eigin áhættu sinni, einkum meðan verið er að byggja upp sjóði stofnunarinnar.

Viðlagasjóður var stofnaður til að leysa tiltekin verkefni. Þegar því er lokið gera lögin ekki ráð fyrir frekari starfsemi hans. Má því telja eðlilegt að Viðlagatryggingin yfirtaki eignir og skuldir Viðlagasjóðs með þeim hætti sem frv. gerir ráð fyrir.

Viðlagatryggingin er hrein eignatrygging eins og brunatrygging. Það er staðreynd að margs konar óbeint tjón hlýst af þegar byggingar og tæki brenna og sama gildir að sjálfsögðu um tjón á þessum eignum af völdum náttúruhamfara. Minna má á að búnaðardeild Bjargráðasjóðs veitir lán og styrki vegna ýmissa óbeinna tjóna í landbúnaði. Hin almenna deild Bjargráðasjóðs ætti á sama hátt að geta hlaupið hér undir bagga, þar eð með tilkomu þessarar tryggingar er vitað að mjög mun létta á henni á því sviði sem Viðlagatryggingin nær til.

Erfitt eða réttara sagt ógerlegt er að spá fyrir fram um það hvenær jarðskjálfti verður hér í þeim mæli að tjón verði á húsum eða þau eyðileggist, en eins og fram kemur í grg. með þessu frv. hefur þetta þó gerst alltoft. Hvenær verður snjóflóð eða skriðuföll á hinum eða þessum staðnum? Fjöll og þröngir dalir og firðir eru margir hér á landi. Ég tel því ekkert áhorfsmál að við gerum okkur grein fyrir þessum hættum og undirbúum okkur undir að mæta slíkum áföllum. Sú leið, sem lagt er til að farin verði með stofnun Viðlagatryggingar Íslands, er að mínum dómi skynsamleg og hagkvæm lausn á þessu máli. En hitt má öllum ljóst vera, að hér er ekki um neina allsherjarlausn að ræða.

Þetta frv. gekk í gegnum Ed. mjög greiðlega og þar var samstaða um frv. að öðru leyti en því að gerð var breyting á 2. gr., frv., að í stað þess að tveir stjórnarmenn skuli kosnir af Sþ., einn valinn af vátryggingafélögum, en trmrh. skipaði tvo og skal annar vera formaður stjórnarinnar, var því breytt á þann veg að Alþ. kýs 3 fulltrúa í stjórn, trmrh. skipar einn án tilnefningar, en tryggingafélögin kjósa einn í stjórnina. Að öðru leyti gerði Ed. ekki breytingar á frv.

Að síðustu vil ég nefna að samkv. 19. gr. frv. er stjórn stofnunarinnar heimilt að veita styrki til framkvæmda sem ætlað er að afstýra tjóni af völdum náttúruhamfara. Er hér að sjálfsögðu fyrst og fremst átt við varnir gegn snjóflóðum, skriðuföllum og flóðum. Ég tel þetta mjög jákvætt og veigamikið atriði, en með varnaraðgerðum yrði hægt að afstýra eignatjóni og jafnvel mannslífum.

Það er álit þeirra manna, sem þetta frv. sömdu og unnu í þessari n., að nauðsyn beri til að hafa nokkuð langan undirbúning að stofnun þessarar tryggingar, og þar sem gert er ráð fyrir að hún taki við af Viðlagasjóði þegar lög um hann renna út, þá legg ég mikla áherslu á að þetta frv. fái skjótan og greiðan gang í gegnum hv. þd. Ætla ég ekki að hafa fleiri orð um þetta frv. að þessu sinni, en legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. heilbr.- og trn.