10.05.1975
Neðri deild: 82. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3810 í B-deild Alþingistíðinda. (2979)

264. mál, Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason) :

Virðulegi forseti. Frv. þetta gerir ekki ráð fyrir neinni breytingu á því meginatriði að inneign Verðjöfnunarsjóðs hjá Seðlabankanum sé jafnan gengistryggð. Hins vegar er óhjákvæmilegt að gera Seðlabankanum kleift að framkvæma þar gengistryggingu án þess að ganga á eigið fé sem felur í sér verulega hættu fyrir traust bankans út á við. Er Seðlabankanum því heimilt að stofna til gengisbundinna lána innanlands, en jafnframt er gert ráð fyrir að ríkissjóður taki á sig vissar skuldbindingar, þ. e. a. s. ef hrein gjaldeyriseign Seðlabankans að viðbættum hinum gengisbundnu útlánum nægir ekki til að fullnægja gengistryggingu Verðjöfnunarsjóðs. Með slíkri breytingu á lögum um Verðjöfnunarsjóð ætti að vera tryggt í framtíðinni að framkvæmd gengistryggingarinnar geti gengið eðlilega fyrir sig án óeðlilegra og óheppilegra peningalegra aukaverkana. Vegna þeirra breytinga, sem gerðar voru á ráðstöfun gengishagnaðar í des. s. l., og þeirrar breytingar á lögum vegna gengisbreytingarinnar í sept. s. l. sem ráðgerð er, er hins vegar nauðsynlegt að gera ráðstafanir til að ganga endanlega frá greiðslu gengistryggingarinnar vegna gengislækkunarinnar frá því í sept. Vegna hinna sérstöku aðstæðna á árinu 1974, sem leiddu til verulegrar tekjuaukningar hjá Seðlabankanum, féllst bankinn á að greiða það sem á vantar að hrein gjaldeyriseign bankans hrökkvi til að standa undir gengistryggingunni, að það verði greitt í þetta sinn af tekjum bankans.

Það skal svo tekið fram að fullt samkomulag er á milli ríkisstj. og Seðlabankans í þessum efnum. Samræmis vegna er eðlilegt að frv., sem er hér síðar á dagskránni, um breyt. á l. um ráðstafanir vegna ákvörðunar Seðlabankans um nýtt gengi, sé afgr. jafnhliða þessu frv.

Virðulegi forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.