10.05.1975
Neðri deild: 82. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3868 í B-deild Alþingistíðinda. (3017)

133. mál, fjarskipti

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):

Það munu vera fleiri þm. í húsinu sem ekki koma hér til fundar þrátt fyrir boð um það. Ég hlýt að átelja þetta mjög harðlega sem og það að á seinustu dögum þingsins sé ekki nægilegt lið í þingsölum til þess að afgreiða mál. Hér bíða á þessum fundi 6 þingmál atkvgr. Og ég hlýt að bæta því við að ef þingheimur ætlast til þess að þingi ljúki fyrir hvítasunnu, þá gerist það ekki með þessum hætti.