12.05.1975
Neðri deild: 83. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3902 í B-deild Alþingistíðinda. (3086)

224. mál, tónlistarskólar

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Hæstv. forseti. Þetta frv. var lagt fram í hv. Ed. sem nú hefur afgr. það. Ed. gerði nokkrar breytingar á frv. sem ég tel að horfi til bóta. Ég skal ekki endurtaka hér þá ræðu sem ég flutti í Ed., en vil aðeins leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. menntmn. sem ég vænti að greiði götu þess eftir föngum.