27.11.1974
Efri deild: 11. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í B-deild Alþingistíðinda. (313)

24. mál, innheimta gjalda með viðauka

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Frv. sama eðlis kemur árlega fyrir Alþ. og kemur því þetta frv. kunnuglega fyrir sjónir. Ég sé ekki ástæðu til að ræða þetta frv. frekar. Fjh.- og viðskn. hefur tekið það til athugunar og leggur til að það verði samþ. óbreytt að venju.