12.05.1975
Neðri deild: 85. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3945 í B-deild Alþingistíðinda. (3171)

203. mál, heilbrigðisþjónusta

Fram. (Jón Skaftason):

Herra forseti. Heilbr: og trn. hefur haft til athugunar og meðferðar frv. til l. um breyt. á l. nr. 56 frá 1973, um heilbrigðisþjónustu, sem er 203. mál þessa þings. N. mælir samhljóða með því á þskj. 681 að frv. verði vísað til ríkisstj. í trausti þess að sérstök athugun fari fram á milli þinga á óskum þeirra sveitarfélaga, sem æskja eftir heilsugæslustöðvum, og frv. þar um verði lagt fyrir næsta þing.