13.05.1975
Sameinað þing: 77. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3965 í B-deild Alþingistíðinda. (3214)

343. mál, eignarráð yfir jarðhita

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Þetta umfangsmikla mál er til meðferðar og athugunar í einstökum ráðuneytum sem undanfari stefnumörkunar á þessu sviði af hálfu ríkisstj., en niðurstaða liggur enn ekki fyrir.