13.05.1975
Sameinað þing: 77. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3968 í B-deild Alþingistíðinda. (3219)
333. mál, rekstrarlán iðnfyrirtækja
Fyrirspyrjandi (Þórarinn Þórarinsson):
Herra forseti. Það er kunnara en frá þurfi að segja að rekstrarkostnaður iðnfyrirtækja hefur aukist mjög að undanförnu, m.a. vegna verðhækkana á hráefnum og vegna kauphækkana. Fyrir nokkru voru svo að frumkvæði Seðlabankans settar auknar hömlur á útlán viðskiptabankanna. Í tilefni af þessu hef ég talið rétt að spyrjast fyrir um hvort gerðar hafi verið af opinberri hálfu ráðstafanir til að tryggja iðnfyrirtækjum næg rekstrarlán með tilliti til sívaxandi rekstrarkostnaðar þeirra að undanförnu.