13.05.1975
Sameinað þing: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4059 í B-deild Alþingistíðinda. (3289)
239. mál, afnotaréttur þéttbýlisbúa af sumarbústaðalöndum
Frsm. (Ellert B. Schram):
Herra forseti. Á þskj. 457 er lögð fram till. til þál. um afnotarétt þéttbýlisbús af sumarbústaðalöndum. Hún er flutt af 6 hv. þm. úr öllum þingflokkum. Þar segir:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að hefja undirbúning að því að skipulögð verði sumarbústaðalönd á ríkisjörðum til afnota fyrir þéttbýlisbúa og láta semja frv. að lögum um þetta efni sem lagt verði fyrir næsta Alþingi“.
Allshn. Sþ. hefur tekið þessa till. til meðferðar og hefur skilað frá sér svo hljóðandi nál.:
„Í vaxandi mæli hefur komið til átaka milli þeirra, sem búa í þéttbýli, annars vegar og þeirra, sem til sveita eru, hins vegar, vegna eignar- og þó einkum afnotaréttur á lítt nytjuðum landssvæðum. Afstaða beggja er skiljanleg. Þéttbýlisbúar vilja njóta útivistar og sumardvalar í sambýli við náttúruna, en hinir, bændur og dreifbýlisfólk, vilja vernda gróðurlönd og afréttir fyrir ágangi.
Þessi till. er flutt til að sætta sjónarmiðin. Hún á að gera fólki kleift að fá til einkaafnota nokkurt land sem þó yrði háð skilyrðum um gróðurvernd, ræktun og hóflega umgengni. Ríkissjóður á nú um 900 jarðir sem sumar hverjar eru lítt eða ekki nytjaðar, og styður n. þá hugmynd að þær jarðir, sem ekki eru í ábúð og hentugar eru til skipulagningar sumarbústaðalanda séu til þess nýttar.
N. mælir með samþykkt þáltill. Fjarverandi afgreiðslu málsins var hv. þm. Jónas Árnason.“