13.05.1975
Sameinað þing: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4060 í B-deild Alþingistíðinda. (3290)

239. mál, afnotaréttur þéttbýlisbúa af sumarbústaðalöndum

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Í sambandi við þessa till. vil ég lýsa stuðningi við hana, en geta þess jafnframt að landbrn. hefur látið vinna nokkra undirbúningsvinnu að þessu máli og er tilbúið að verulegu leyti með svæði í sambandi við jörð þá sem það keypti austur við Gunnarsholt, að nokkur hluti af því landi verði notaður í þessu skyni. Á öðrum stað hefur þetta einnig verið tekið upp, en mest hefur þó verið unnið að þessu máli þarna austur frá. Ég tel eðlilegt og sjálfsagt að að þessu verði unnið og tel þetta mikið nauðsynjamál.