14.05.1975
Neðri deild: 87. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4128 í B-deild Alþingistíðinda. (3384)

258. mál, Viðlagatrygging Íslands

Frsm. (Guðmundur H. Garðarsson):

Virðulegi forseti. Heilbr: og trn. hefur fjallað um frv. til laga um Viðlagatryggingu Íslands. Það er álit meiri hl. n. að hér sé um veigamikið og þýðingarmikið mál að ræða sem æskilegt sé að koma í höfn sem fyrst og þess vegna mælir meiri hl. með því að frv. verði samþ. óbreytt. Minni hl. hefur hins vegar skrifað undir með fyrirvara.