14.05.1975
Neðri deild: 89. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4188 í B-deild Alþingistíðinda. (3447)

258. mál, Viðlagatrygging Íslands

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Ég skal með ánægju undirstrika það, sem hv. 4. þm. Vestf. tók fram, að fyrir haustþingið mun fara fram endurskoðun á lögum um Bjargráðasjóð. Það er ekki vegna þess að ég vildi skorast undan að gefa þessa yfirlýsingu sem ég hef ekki gert það, heldur hélt ég að það væri alveg nægilegt að hv. þm. skýrði frá því að hann hefði rætt við mig um þetta mál og ég mundi gera ráðstafanir til þess. En sem sagt, þessi lög verða endurskoðuð fyrir haustið.