15.05.1975
Sameinað þing: 80. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4325 í B-deild Alþingistíðinda. (3539)

278. mál, samstarfssamningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar

Frsm. (Þórarinn Þórarinsson) :

Herra forseti. Till. þessi fjallar um fullgildingu á samkomulagi um breytingu á samstarfssamningi frá 23. mars 1962 milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar. Utanrmn. hefur athugað þennan nýja samning eða nýja samkomulag og mælir með því að till. verði samþykkt. Varðandi efni hins nýja samkomulags tel ég nægja að vísa til þess sem segir í grg. till., en þar er gerð grein fyrir þeim aðalbreytingum sem felast í þessu nýja samkomulagi.