15.05.1975
Neðri deild: 91. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4333 í B-deild Alþingistíðinda. (3576)
109. mál, sjóður til aðstoðar við drykkjusjúka
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti: Ég hef, held ég, frá fyrstu tíð, frá því að ég tók sæti á hv. Alþ., verið þeirrar skoðunar að það ætti ekki að marka tekjustofna ríkissjóðs á þann veg sem lagt er til með þessu frv. Ég er hins vegar samþykkur frv. eins og það liggur fyrir nú. Og ég tel að það sé ekki nóg að þeir láti í sér heyra, sem hafi áhuga á málinu og þekki það af afspurn, heldur mættum við kannske líka, sem höfum notið þessa munaðar í hófi og kannske oftar í óhófi, nokkuð láta í okkur heyra.
Ég er alveg sammála þeim, sem hér hafa talað, um þetta mikla vandamál okkar og kannske fyrir okkur sjálfa, sem höfum reynt það, og jafnframt fyrir þá, sem eins og ég hafa verið í fararbroddi oft og tíðum fyrir fjölmennum félögum launþega þar sem orð hefur legið við að þetta væri mikið böl, svo sem rétt er. En að sjálfsögðu, þó að mikið beri á því í stéttum sjómanna þegar þeir koma í land, þá er þetta ekkert minna vandamál meðal annarra stétta, þar sem minna ber á því, vegna þess að mennirnir eru kannske upp á hvern dag viðriðnir misneyslu áfengra drykkja.
En þótt ég muni greiða þessu frv. atkv. mitt, þá breytir það engu um þær skoðanir sem ég hef haft frá fyrstu tíð, og kem ég þá máske nokkuð inn á orð hv. síðasta ræðumanns um fyrirbyggjandi varnarstarf því að hún orðaði það. Það er ekkert fyrirbyggjandi varnarstarf að taka til starfa þegar fólk er orðið sjúkt. Hið fyrirbyggjandi varnarstarf á auðvitað að hefjast miklu fyrr. Það á að byrja meðan fólk er í æsku. Ég hef margoft flutt hér á Alþ. frv. þess efnis að við eigum að snúa okkur frá þessum æsisterku drykkjum og beina heldur áfengisneyslu þjóðarinnar að vægari drykkjum. Það hefur aldrei verið hlustað hér á það meðal hv. alþm. En um leið og ég bendi á þetta, þá vil ég aðeins undirstrika það að auðvitað er mjög góðra gjalda vert að komið sé á móti þeim sem sjúkir eru orðnir af ofneyslu áfengis. Það á að gera það og okkur hefur skammarlega lengi láðst að koma á móti þeim sem hafa yfirbugast af þessum orsökum. Við eigum að betrumbæta það. Og ég hef enga trú á því, ef við ekki nú tökum þennan markaða tekjustofn út úr til þess að hjálpa þessu fólki, að hæstv. ríkisstj. með fjmrh. í fararbroddi og aðra bindindismenn hér innan Alþ. leyfi sér að setja nægilegt fé til þessa nauðsynlega starfs. Þess vegna ætla ég að mæla með þessu frv. og samþykkja það.
En ég vil aðeins undirstrika aftur það, sem ég var að koma að og hef þegar sagt, að það, er ekki nóg aðeins að taka við mönnum þegar þeir eru orðnir sjúklingar. Það er eins og við alla aðra sjúkdóma, það á að reyna að fyrirbyggja að til þessa sjúkdóms komi, og það er sama. hvaða sjúkdóm þar er um að ræða. Við þurfum að efla heilsurækt á þessu sviði eins og öðrum. Og ég er sannfærður um að ef fræðsla um meðferð og neyslu og áhrif áfengis hefst á fyrsta stigi, sem má kannske segja að hér á Íslandi í dag sé þegar í barnaskólum, alla vega í framhaldsskólum þá tel ég að það sé orðið nauðsynlegt að hafa slíka fræðslu. Því má segja, eins og hv. síðasti ræðumaður sagði, að það er kannske verið að grípa í öfugan enda með frv. En þó tel ég að það sé spor í rétta átt. Og að sjálfsögðu má líka fara yfir í það að tala og leiðbeina æskunni ekki síður en lækna þá sem hafa látið fallast fyrir þessum göfuga miði sem sumir kalla.
En ég vil aðeins undirstrika það, að ég tel að það sé verið á réttri leið með þessu frv. og ég mun styðja það heils hugar.