15.05.1975
Neðri deild: 91. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4341 í B-deild Alþingistíðinda. (3587)

286. mál, iðnaðarmálagjald

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Hv. frsm. meiri hl. n., 1. þm. Sunnl., hefur nú skýrt þetta mál svo vel og svarað því, sem fram kom í ræðu hv. 3. þm. Austf., að ég þarf engu þar við að bæta.

Það er aðeins eitt atriði sem ég vildi leiðrétta. Hv. 3. þm. Austf. lét þau orð falla að þetta mál mundi ekki hafa verið rætt í þingflokki sjálfstæðismanna, svo sem yfirleitt væri um stjfrv. áður en þau væru flutt. Þetta er misskilningur hjá hv. þm. Ég lagði frv. fyrir þingflokk sjálfstæðismanna, reifaði það og rakti efni þess og þingflokkurinn samþykkti einróma fyrir sítt leyti að frv. yrði flutt sem stjfrv. Þetta tel ég rétt að komi hér fram.