15.05.1975
Efri deild: 94. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4349 í B-deild Alþingistíðinda. (3606)
95. mál, vegalög
Frsm. (Jón Helgason) :
Herra forseti. Í Nd. voru gerðar smávægilegar breytingar á frv. til l. um breyt. á vegalögum. 15. gr. frv. var skipt í tvær greinar. Síðari hluti 15. gr., eins og hún var frá Ed., var gerður að 16. gr. sem hljóðar þá þannig: „Lög þessi öðlast þegar gildi. Þegar lög þessi hafa öðlast gildi, skal fella meginmál þeirra inn í vegalög, nr. 80 10. júlí 1973, og gefa þau út svo breytt.“ Efnið er sem sagt alveg óbreytt, þessu er aðeins skipt í tvær gr.
Síðan er ákvæði til bráðabirgða, þar breytast dagsetningar, í staðinn fyrir 15, apríl kemur 25. maí og í staðinn fyrir 1. maí kemur 1. júní.
Samgn. mælir með því að frv. verði samþ. eins og hv. Nd. afgreiddi málið.