16.05.1975
Efri deild: 96. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4378 í B-deild Alþingistíðinda. (3665)
220. mál, atvinnuleysistryggingar
Axel Jónsson:
Herra forseti. Ég lýsi stuðningi við þetta frv. í trausti þess að með þeirri breytingu, sem á hefur verið gerð, verði annað hvort fjáröflunin til þess hagað á annan hátt en þar er gert ráð fyrir ellegar að Atvinnuleysistryggingasjóði verði tryggðar tekjur eða af Atvinnuleysistryggingasjóði verði létt þeim gjöldum sem búið er að lögfesta á hann.