16.05.1975
Sameinað þing: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4381 í B-deild Alþingistíðinda. (3683)

144. mál, lækkun á byggingarkostnaði

Frsm. (Lárus Jónsson) :

Herra forseti. Allshn. hefur haft þessa till. til athugunar og gefið út svofellt nál.:

Allshn. hefur haft til athugunar till. til þál. um lækkun á byggingarkostnaði. N. leggur til, að till. verði samþ. með þessari breytingu:

Tillgr. orðist svo:

Í þeim tilgangi að draga úr húsnæðiskostnaði ályktar Alþ. að fela ríkisstj. að láta gera nákvæma skýrslu um þann hluta byggingarkostnaðar sem fólginn er í ýmiss konar gjöldum til ríkisins. Höfð skal hliðsjón af þessari skýrslu við þá endurskoðun aðflutningsgjalda og söluskatts sem nú fer fram.“