16.05.1975
Sameinað þing: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4382 í B-deild Alþingistíðinda. (3687)

16. mál, skipting landsins í þróunarsvæði

Frsm. (Steingrímur Hermannsson) :

Herra forseti. Atvmn. hefur haft þetta mál til athugunar og sent það til umsagnar. Hún hefur fengið umsagnir frá fimm aðilum. Í umsögnum þessum kemur fram að þessir aðilar telja málið hið merkasta, en hins vegar nauðsynlegt að skoða ýmsa þætti þess mjög vel. Þetta hefur einnig orðið niðurstaða n. sjálfrar. Hún telur því ekki fært að mæla með samþykkt till. eins og hún liggur nú fyrir, en leggur til að málið verði skoðað nánar.

Athygli var vakin á því, að á vegum þingsins starfar mþn. um byggðamál. Þetta mál fellur vel innan ramma þess starfs sem sú n. er að vinna. Því er lagt til í nál. á þskj. 805 að má linu verði vísað til ríkisstj. í trausti þess að ríkisstj. feli þeirri n. að skoða málið betur.