16.05.1975
Sameinað þing: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4387 í B-deild Alþingistíðinda. (3702)

289. mál, íslensk stafsetning

Flm. (Sverrir Hermannsson) :

Herra forseti. Þar sem ég ásamt öðrum flm. fellst á að draga til baka síðari lið till., þá sýnist mér till. hæstv. menntmrh. óþörf og þurfi ekki að koma til atkv., ef hann vildi athuga um. að draga hana til baka. (Menntmrh.: Já, ég dreg hana þá auðvitað til baka.)