16.05.1975
Sameinað þing: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4390 í B-deild Alþingistíðinda. (3709)

145. mál, endurskoðun laga um iðju og iðnað

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Fyrir hönd hv. 1. flm. þessarar till., Gunnars J. Friðrikssonar, sem ekki situr á Alþ. nú, og okkar annarra flm. vil ég færa hv. n. þakkir fyrir þessa afgreiðslu málsins. Við föllumst á þá breytingu, sem frsm. lýsti, og vonumst til þess að till. verði samþ.