16.05.1975
Efri deild: 97. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4400 í B-deild Alþingistíðinda. (3730)

Starfslok efri deildar

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta hlý orð í okkar garð og okkar fjölskyldna. Jafnframt þökkum við honum gott samstarf og sanngjarna fundarstjórn á yfirstandandi þingi og óskum honum og fjölskyldu hans alls hið besta og vonum að mega sjá hann heilan og hraustan þegar þing kemur saman að nýju. Ég vil biðja hv. þdm. að taka undir þessi orð mín með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]