16.05.1975
Neðri deild: 92. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4422 í B-deild Alþingistíðinda. (3755)

129. mál, fisksölusamstarf við Belgíumenn

Frsm. (Sverrir Hermannsson):

Virðulegi forseti. Sjútvn. hefur haft til meðferðar till. til þál. um fisksölusamstarf við Belgíumenn. Þetta hefur verið nefnt „við Belga“, en þeir, sem eru orðnir ruglaðir af of tíðum auglýsingum frá menntmrn., nefna þá nú tíðum „belgi“. Hér er þó ekki till. um að breyta fyrirsögn þáltill. N. mælir með því, að till. verði samþ. Jón Skaftason var fjarstaddur afgreiðslu málsins.