16.05.1975
Sameinað þing: 82. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4426 í B-deild Alþingistíðinda. (3769)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Kristján Eldjárn) :

Gefið hefur verið út svofellt forsetabréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Alþingi, 96. löggjafarþing, hefur lokið störfum. Mun ég því slíta Alþingi í dag.

Gjört 16. maí 1975.

Kristján Eldjárn.

Geir Hallgrímsson.

Forsetabréf um þinglausnir.“

Samkvæmt þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið.

Ég óska alþm. velfarnaðar, þjóðinni allra heilla og bið alþm. að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp og forsrh., Geir Hallgrímsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.