04.12.1974
Efri deild: 14. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 532 í B-deild Alþingistíðinda. (397)

22. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Allshn. hefur tekið til meðferðar frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar,sem hér hefur verið gerð grein fyrir við 1. umr., og leggur n. til að frv. verði samþ. óbreytt. Það hefur áður verið gerð grein fyrir því að þetta frv. var undirbúið á síðasta þingi, og gert er ráð fyrir að á þessu þingi komi nýtt frv. með nýjum nöfnum til skoðunar, en í þessu frv. eru nöfn 53 manna. — Nefndin leggur til að frv. verði samþ. óbreytt.