05.11.1974
Sameinað þing: 5. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í B-deild Alþingistíðinda. (45)

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Forseti (Ásgeir Bjarnason): Umræðan skiptist í tvær umferðir, þannig að í fyrri umferð hefur forsrh. til umráða allt að hálfri klukkustund og fulltrúar annarra þingflokka en forsrh. 20 mín. hver. Í síðari umferð hefur hver þingflokkur 10 mín. til umráða. Röð flokkanna verður þessi: Sjálfstfl., SF, Framsfl., Alþb. og Alþfl. Ræðumenn auk forsrh. verða þessir: Af hálfu Sjálfstfl. talar Gunnar Thoroddsen iðnrh. í síðari umferð. Af hálfu SF talar Karvel Pálmason, 5. þm. Vestf., í fyrri umferð og Ólafur Ragnar Grímsson, 3. landsk. þm., í síðari umferð. Fyrir Framsfl. talar Halldór E. Sigurðsson landbrh. í fyrri umferð og Einar Ágústsson utanrrh. í síðari umferð. Af hálfu Alþb. talar í fyrri umferð Lúðvík Jósepsson, 2. þm. Austf., og Þór Vigfússon, 5. þm. Sunnl., í þeirri síðari. Loks talar fyrir Alþfl. Gylfi Þ. Gíslason, 9. þm. Reykv., í fyrri umferð og í síðari umferð Benedikt Gröndal, 2. landsk. þm. — Hefst þá umræðan og tekur hæstv. forsrh., Geir Hallgrímsson, til máls: