10.12.1974
Sameinað þing: 20. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í B-deild Alþingistíðinda. (532)

309. mál, þjóðhátíðarmynt

Fyrirspyrjandi (Sigurlaug Bjarnadóttir):

Herra forseti. Ég verð nú að segja að mér finnst ég ekki hafa verðskuldað neinar snupur fyrir að bera fram þessa fsp. Það, sem vakti fyrir mér, var einungis þetta, sem ég þarf ekki að endurtaka hér, og eftir þeim skilningi sem ég hef komist að með því að pæla í gegnum lög Seðlabankans, þá sé ég ekki enn að það sé á hans valdsviði að ráðstafa fjármunum svo stórum sem hér eru annars vegar.