10.12.1974
Sameinað þing: 21. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í B-deild Alþingistíðinda. (552)

73. mál, kaup á farþegaskipi er sigli milli Íslands, Færeyja, Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur

Flm. (Jón Árm. Héðinsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 77 hér í Sþ. eftirfarandi till. til þál.:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að undirbúa nú þegar kaup á sérsmíðuðu farþegaskipi, er hafi reglubundnar ferðir milli Reyðarfjarðar (Búðareyrar), Þórshafnar í Færeyjum, Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur. Stefnt skal að því, að skipið geti hafið ferðir milli landanna að vorlagi 1976.“

Ég mun nú lítillega gera grein fyrir viðhorfi mínu í þessu efni og stikla á stærstu atriðunum í sjálfri grg.

Þegar m/s Gullfoss var seldur úr landi, hvarf síðasta sérsmíðaða farþegaskipið úr eigu Íslendinga. Margir munu sakna Gullfoss, utan þings sem innan. Ýmsar raddir hafa verið uppi um það á undanförnum árum að nauðsyn væri á því að endurnýja skipakost okkar Íslendinga í farþegaskipum en hf. Eimskipafélag Íslands, einu sinni nefnt óskabarn þjóðarinnar, hefur ekki talið sér fært, telur sér það sem sé um megn að kaupa nýtt skip og ber við að allir útreikningar þeirra sýni að ekki geti verið um beinan hagnað að ræða af rekstri slíks skips. Ég vil líta svo á að kaup á svona skipi séu liður í samgöngukerfi þjóðarinnar og því beri að athuga um kaupin þótt beinn rekstrarhagnaður sé ekki tryggður við fyrstu yfirsýn né á fyrstu árunum þegar vextir eru hvað mestir og afborgun hvað erfiðust. Arðsemi svona skips kemur á margan hátt fram sem beint framlag til eflingar annarri starfsemi í þjóðfélaginu og með því fyrirkomulagi, sem ég hugsa mér fyrst og fremst, mun það verka til hagsbóta úti um land. Ekki er nokkur vafi á því að rekstur á svona skipi yrði mikil lyftistöng fyrir Austfirði og héruðin bæði fyrir norðan og sunnan sérstaklega. Hins vegar skapar hringvegurinn í raun nýtt viðhorf í samgöngukerfi okkar og einmitt þess vegna ber að endurskipuleggja að mínu mati staðsetningu aðalhafnar fyrir farþegaskipið er siglir reglubundið til hinna Norðurlandanna.

Ég tel að það eigi að vera metnaðarmál okkar að hafa ákveðið kaup á sérsmíðuðu farþegaskipi á næsta ári og það sem fyrst. Það er ekki sæmandi fyrir íslendinga að eiga ekki gott farþegaskip, þótt það sé staðreynd að yfirgnæfandi meiri hluti farþega fari nú með flugvélum milli Íslands og annarra landa. Þrátt fyrir það má ekki gefast upp við að reka hér gott farþegaskip og tryggja með því reglubundnar samgöngur á sjó, einkum milli eyþjóðanna, svo og Noregs og Danmerkur.

Ég geri mér grein fyrir því að mikill vandi er að velja rétta stærð af skipi með hentugum útbúnaði sem tryggi jafnframt öryggi farþeganna og sé einnig ódýrt í rekstri. Þess vegna legg ég til að sérfróðum og duglegum mönnum, sem áhuga hafa á málinu, verði falið að rannsaka hvaða gerð og stærð muni best henta okkur með hliðsjón af því fyrirkomulagi sem ég legg til að verði á ferðunum. Sumum kann að finnast að þetta sé nokkuð byltingarkennt fyrirkomulag, en ég held einmitt að það sé mjög stór þáttur í því að skipið nái nauðsynlegum árangri. Ég hef farið með nýju skipi á milli Hirtshals og Kristjánssands, sem ég tel að geti verið fyrirmynd að góðu skipi fyrir okkur. Ég tel að skipið verði að hafa minnst 16 mílna ganghraða að jafnaði svo að tími á sjónum sé ekki of langur og skipting vegalengda kemur vel út með þessum ganghraða, eins og greinilega er tekið fram í grg. þáltill. og óþarfi er að lesa sérstaklega upp.

Mikilvægt atriði er að farþegar séu ekki að jafnaði yfir einn sólarhring um borð án þess að koma að landi. Þetta segja mér mjög reyndir menn í farþegaskiparekstri að sé metið mikils af farþegum þegar þeir velja á milli skipa eða annarra farartækja. Yfirlitið um tíma á milli siglingastaða sýnir að með 16 mílna hraða á klst. er komið vel til móts við þetta sjónarmið farþeganna. Sjálfsagt má koma með till. um annað fyrirkomulag ferða eða staði, en n. mun þá kanna það betur. Ég vil þó leyfa mér að nefna að t.d. aðra hvora ferð yfir vissan árstíma gæti komið til greina að sigla þannig: Reyðarfjörður — Þórshöfn–Bergen eða Kristianssand og svo beint til Hirtshals, sem er nyrst á Jótlandsskaga eða norðarlega, þaðan svo með viðkomu aftur í Aberdeen og Þórshöfn og jafnvel til Akureyrar í staðinn fyrir Austfirðina. Þetta er skemmtileg tilbreytni sem mundi örugglega draga að sér viðbótarhóp farþega, sérstaklega frá Mið-Evrópulöndunum, en í mjög vaxandi mæli fer þetta fólk nú í bil norður um Evrópu og yfir til Noregs.

Miðað við þær upplýsingar, sem ég hef handbærar, má ætla að skip með þægilegt pláss fyrir 350–400 farþega, svo og rúm fyrir allt að 90 fólksbíla, geti hentað vel. Öllum ber saman um að rétt sé að reikna með því að bíll fylgi að meðaltali 4–5 farþegum og má vænta þess að fólk taki bílinn enn meir með sér ef hentugt skip er til ráðstöfunar. Þar sem flestir farþegar eiga þess kost að koma á land einu sinni á sólarhring, segja mér einnig fróðir menn í þessum efnum að mun skynsamlegra sé að hafa eins konar kaffiteríusnið á matarþjónustu um borð og hætta þar með að hafa mikið og dýrt þjónalið, en í þess stað verða farþegar að ná í matföng sín sjálfir. Þá eru að jafnaði fáir og léttir réttir til reiðu. Hins vegar mætti einnig koma til móts við það sjónarmið að hafa betur útbúinn sal fyrir nokkra tugi farþega þar sem gæti þá farið fram góð þjónusta við ákveðinn hóp manna, ef þeir ferðast þannig í hópum, og jafnvel hef ég látið mér detta í hug að einnig gæti þar farið fram menningarleg starfsemi meðan á ferðunum stendur, myndlistarkynning á listamönnum okkar og annarra Norðurlandaþjóða, einsöngur, upplestur o.s.frv. Því ekki að koma með smátilbreytingu einmitt á svona leiðum og nánari kynningu á verkum okkar manna?

Ég geng hér ákveðið út frá því að heimahöfn þessa skips sé á Austfjörðum. Ég vænti þess að ekki komi til sérstaks hrepparígs innbyrðis um staðarvalið. En telji menn hins vegar að einhver ákveðinn staður annar sé heppilegri vegna annarra atvika, set ég mig ekki á móti slíku. Nauðsynlegt er að gera góða aðstöðu fyrir skipið svo að allt geti gengið greiðlega við afgreiðslu og farþegar þurfi ekki að verða fyrir óþarfatöfum. Þótt skipið sé fyrst og fremst fyrir farþega, er einnig vel hugsanlegt að nokkurt magn af vörum gæti komið með í hverri ferð og þá auðvitað flutt í gámum. En ég hef sannreynt það að samgöngur milli Noregs og Íslands voru um tíma í fyrra það erfiðar, að nærri tók tvo mánuði fyrir menn að fá vörur frá Noregi til Íslands.

Nú munu einhverjir halda því fram að gersamlega vonlaust sé að reka svona skip, þar sem verkefnin séu aðeins 6–8 mánuði á ári. Auðvitað er mikið til í þessu. En ég vil koma hér með þá hugmynd einnig, að í stað þess að íslendingar flykkist inn á hótel á Spáni eða á öðrum stöðum Suðurlanda, þá megi athuga að láta skipið hafa samastað í góðri höfn um veturinn og nýta það þar í okkar þágu. Gætu íslendingar ekki dvalið þar um borð eins og á dýrum hótelum og notað flugvélakost okkar til þess að flytja okkur á milli áfangastaða?

Ekki vil ég leggja ákveðið til, hvaða aðilar skuli annast þennan rekstur. Ég tel þó nauðsynlegt að ríkið eigi hér stóran hlut að máli og hafi ákveðna ábyrgð á rekstrinum og bakábyrgð í greiðslum gagnvart seljanda skipsins eða skipasmiðastöð. Það er von mín að ekki komi til átaka um rekstrarformið, heldur verði samstaða um að kaupin verði gerð og þar með tryggð. Mér er ekki kunnugt um kaupverð á svona skipi í dag og verðlag er nú allt mjög breytilegt. En ekki er unnt að spá um á þessu stigi. Hins vegar tel ég rétt að útboð í smíði skipsins verði gerð á öllum Norðurlöndunum og aðstoð við fjármögnun fengin einnig þar.

Norðurlandaráð hefur tekið samgöngumálin til sérstakrar meðferðar og vil ég vænta þess að frá þeirri stofnun megum við eiga von á jákvæðum stuðningi. Þessi hugmynd hefur þegar verið rædd þar, þó ekki í beinu formi við það sem ég legg til, en mér skilst, eftir því sem ég best veit, að jákvæðar raddir hafi komið fram um bættar samgöngur hér á milli með hliðsjón af siglingum.

Enginn vafi er á því að hjá færeyingum er brennandi áhugi á málinu, og veit ég þar um ákveðinn þm. sem hefur mjög beitt sér fyrir því að þessi hugmynd komist til framkvæmda, svo að þaðan eigum við öruggan stuðning í þessu efni. Þeir mundu sennilega njóta hvað mests ávinnings af að fá svona skip og væri það vel, svo góð samskipti sem við höfum haft við þessa frændþjóð okkar í mörg ár og þeir oft hjálpað okkur þegar mannaflaskortur var hér á vertíðum áður fyrr.

Hér kom fram á hv. Alþ. — ekki á sumarþinginu, heldur hinu þinginu, 94. löggjafarþingi, — frv. um skipan ferðamála. Var það mikill bálkur en varð ekki útræddur. Ferðamálin eru stórmál og vaxandi þáttur í okkar þjóðarbúskap. Menn hafa komið með ýmsar hugmyndir í því efni, hvernig standa skuli að þeim málum. Margir hafa talað um vissar áætlanir, t.d. 3 ára áætlun eða 5 ára áætlun og ég tel vel viðeigandi að svona skip komi þar inn í.

Við vitum að fólk vill ferðast í frítíma sínum á milli landa. Alþ. hefur þegar samþykkt að hvetja til vetrarorlofs og hafa margir hagnýtt sér slíkt hér á landi og mun verða í vaxandi mæli. En ég tel að með svona gerbreyttri skipan á ferðamálum á sjó munum við einnig tryggja það að menn munu hagnýta sér þennan möguleika verulega og við munum fá vaxandi þátt í gegnum þessa starfsemi á sjónum og með þessu fyrirkomulagi. Þess vegna er þessi till. flutt, að ég vænti þess að henni verði tekið jákvætt og málið látið fá eðlilega athugun. Það vannst einnig tími til þess í fyrra sinnið þegar till. kom fram.

Að svo mæltu, herra forseti, legg ég til að hlé verði gert á umr. og till. vísað til fjvn.