13.12.1974
Efri deild: 20. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í B-deild Alþingistíðinda. (633)
96. mál, launaskattur
Frsm. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Fjh,- og viðskn. hefur tekið frv. þetta til athugunar og mælir með því að það verði samþ. óbreytt. Hér er um það að ræða, að með l. nr. 10 22. mars 1974 var ákveðið að frá 1. apríl 1974 til loka þessa árs skyldi almennur launaskattur vera 31/2%, og lagt er til að svo verði einnig á árinu 1975, en það er lagt til að gildistími l. verði aðeins eitt ár. Það eru ýmsar ástæður fyrir því, og eins og er tekið fram hér í aths. við þetta lagafrv. er það sérstaklega vegna þess að það eru fyrirhugaðar breytingar á gjöldum sem launagreiðendum er gert að greiða ríkissjóði og Tryggingastofnun vegna starfsmanna sinna. Það mundi verða mjög mikið hagræði að því að sameina þessi gjöld. Þess vegna þykir ekki rétt að gildistími l. sé meira en eitt ár.
Að mínum dómi ber að hafa í huga, að ef af því verður að virðisaukaskattur yrði tekinn upp hér á landi, þá kæmi mjög til athugunar að hækka launaskattinn jafnhliða vegna þess að virðisaukaskattur er þannig gerður að hann færir skattbyrðina frá fyrirtækjunum yfir á heimilin, og til þess að sporna við slíku kæmi mjög til álita að hækka launaskattinn jafnhliða.
Að svo mæltu vil ég fyrir hönd n. leggja til að frv. þetta verði samþ., og þar sem hér er um allbrýnt mál að ræða vil ég fara þess á leit, herra forseti, að 3. umr. fari fram þegar að lokinni þessari umr.