17.12.1974
Sameinað þing: 25. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 933 í B-deild Alþingistíðinda. (776)

1. mál, fjárlög 1975

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Fyrir 25 árum, þegar ég var fyrst nemandi þessa skóla, var eins ástatt með skólahús hans og er nú í dag, hann var hvorki vatns- né vindþéttur. Mér er mikil ánægja að segja já við þessa atkvgr., en til vara mun ég flytja brtt. við 3. umr. um heldur minni upphæð, en a.m.k. að hún geti farið í þann farveg að fólk þurfi ekki að sjóklæðast í skólastofum Sjómannaskólans.