12.11.1974
Sameinað þing: 6. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í B-deild Alþingistíðinda. (79)

Umræður utan dagskrár

Gils Guðmundsson:

Ég vil einungis þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans. Ég mun ekki við þetta tækifæri fara fleiri orðum um það mál, sem hér um ræðir, og það biður þá þess tækifæris þegar hæstv. ráðh. hefur lagt fram skýrslu sina. Ég tel svör hans fullnægjandi að þessu sinni, en vænti þess, að það dragist ekki lengi, að hægt verði að ræða þessi mikilvægu mál hér á hv. Alþ. í því formi, sem skýrslan gefur tilefni til.