12.11.1974
Sameinað þing: 6. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (84)
Umræður utan dagskrár
Axel Jónsson:
Herra forseti. Ég vil út af ummælum 5. þm. Vestf. aðeins upplýsa það, að Kópavogskaupstaður hefur enn þá ekki gengið frá sínum fjármálum hvað þetta snertir, eins og kom fram í ræðu hv. þm. Umræður um lausn fjárhagsvanda Kópavogskaupstaðar standa yfir. Okkur kópavogsbúum hefur tekist til þessa að leysa þau mál fyrst og fremst fyrir velvilja og atbeina okkar viðskiptabanka, Búnaðarbankans, og einnig með aðstoð Seðlabankans, en umræður um þetta standa yfir fyrir tilstuðlan félmrn.
Ég vil hins vegar minna hv. 5. þm. Vestf. á það, að hæstv. félmrh., Björn Jónsson, lýsti því yfir í Ed. Alþ. vegna fyrirspurnar minnar fyrir s.l. áramót að það yrði mjög gaumgæfilega athugað og skoðað í hverju tilviki, hvort einstökum sveitarfélögum yrði leyft að leggja á 11%. Það gerðist síðan, að hæstv. félmrh., Magnús T. Ólafsson, gaf út þá yfirlýsingu að hann úrskurðaði að engu sveitarfélagi yrði heimilt að leggja á 11%. Eins og hv. þm. er kunnugt var þetta leyft 1972 til þeirra sveitarfélaga, sem ég hygg að þess óskuðu þá. Það var hins vegar gefin út yfirlýsing, sem tók yfir öll sveitarfélögin án nokkurrar athugunar, fyrir árið 1973 þar sem þessu var hafnað, sem ég og fleiri sveitarstjórnarmenn töldum mjög óeðlilegt og þess vegna bar ég mína fyrirspurn fram á sínum tíma víð hæstv. þáv. félmrh., Björn Jónsson, og hans svör urðu þau, að málefni sveitarfélaganna yrðu athuguð hvert fyrir sig. Hins vegar varð niðurstaðan þessi, að það var sama afgreiðsla á árinu 1974 og 1973, og til þessa er að rekja vissan þátt erfiðleika, sérstaklega þeirra sveitarfélaga sem veita mesta þjónustu og þurfa að standa í mestum framkvæmdum.
Ég lýsi ánægju minni yfir því, að hv. þm. fulltrúi Frjálslyndra og vinstri manna hefur í dag þessa skoðun á málinu sem fram kom, og lýsi einnig skoðun minni á því, að talsmaður Alþb., sem hér hefur látið í sér heyra, er einnig sömu skoðunar. Það er mjög ánægjulegt að þau sinnaskipti hafa orðið. Ég vonast til að þessi vandamál sveitarfélaganna verði leyst með atbeina þeirra aðila sem þar um fjalla.