17.12.1975
Neðri deild: 32. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1356 í B-deild Alþingistíðinda. (1010)

101. mál, verðjöfnunargjald raforku

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) :

Forseti. Þetta frv. felur í sér framlengingu um eitt ár á verðjöfnunargjaldi raforku. Það var lagt fyrir hv. Ed. og samþ. þar. Núgildandi lög um verðjöfnunargjald raforku falla úr gildi í árslok 1975, og breyt. er í því fólgin að miðað verði við árslok 1976 í staðinn.

Í frv. til fjárl. fyrir næsta ár er gert ráð fyrir þessum tekjum vegna rekstrar Rafmagnsveitna ríkisins.

Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. iðnn.