17.12.1975
Neðri deild: 33. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1360 í B-deild Alþingistíðinda. (1022)

119. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Virðulegi forseti. Það eru aðeins nokkur orð út af þessu frv. Ég vil taka það fram að þó að hér sé um framlengingu á 1% gjaldinu að ræða, þá kemur auðvitað það til athugunar og endurskoðunar ef sjóðakerfi sjávarútvegsins verður breytt á næsta ári, en að því er nú unnið. Ég vildi aðeins að þetta kæmi hér skýrt fram, áður en frv. er afgr. út úr deildinni.