22.10.1975
Neðri deild: 9. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í B-deild Alþingistíðinda. (114)

9. mál, skylduskil til safna

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Þetta frv. um skylduskil safna var lagt fyrir síðasta Alþ. og er flutt hér óbreytt.

Í 1. kafla þessa frv. er greint frá megintilgangi væntanlegra laga, en hann er sá að tryggja að unnt sé að varðveita til frambúðar það efni sem skilaskyldan nær til. að unnt sé að gera og gefa út alveg tæmandi skrár um þetta efni eða tiltekinn hluta þess og efnið geti enn fremur verið tiltækt til nota vegna rannsókna opinberra stjórnsýsluaðila eða til annarra eðlilegra þarfa. Í fyrri löggjöf hefur þótt bresta nokkuð á að þessi tilgangur væri skýrður nægilega vel.

Það er rétt að taka fram að þegar í II. kafla, um skilaskylt efni, segir að íslenskar prentsmiðjur skuli halda eftir 4 eintökum til skylduskila, þá felur það í sér að útgefandinn eða sá, er prenta eða margfalda lét, eins og segir í frv., ber í rauninni allan kostnað af skylduskilunum. Það er svo nýmæli í þessu frv. að afhenda skuli hljómplötur eða annars konar tón- og talupptökur sem gefnar eru út, en nauðsynlegt er að tryggja einnig að þessu efni sé haldið örugglega til haga, engu síður en því efni, sem prentað er eða fjölfaldað á annan máta.

Um það efni, sem ætlað er til takmarkaðra nota innan þröngs hóps eða e. t. v. er trúnaðarmál, þegar það er gefið út, þá er rétt að taka fram að því ber að skila engu síður en öðru efni. Það er svo skylda Landsbókasafnsins, sem er viðtakandi, en ekki prentsmiðjunnar, að tryggja það síðan, eins og fram kemur í frv., að með það efni verði farið af þeirri leynd sem ætlast er til.

III. kafli frv. fjallar um framkvæmd skylduskilanna. Þar segir m. a. að Landsbókasafn Íslands veiti skyldueintökum viðtöku og hafi eftirlit með skylduskilum.

Í IV. kafla frv. er svo rætt um varðveislu og meðferð skyldueintakanna. Varðveisla alls hins skilaskylda efnis er ekki talin trygg til frambúðar nema í Landsbókasafni séu tvö eintök af hverju einu og sé annað þeirra varðveitt sem hreint geymslueintak, en hitt aftur á móti til nota á lestrarsal. Til enn frekari öryggis á viðsjárverðum tímum þykir einnig nauðsynlegt að eitt eintak sé varðveitt annars staðar, í öðrum landshluta, og þá eðlilegast að Akureyri verði fyrir valinu sem fjölmennasti bær og augljós framtíðarstaður fjarri höfuðborgarsvæðinu. Til þess að varðveisla skyldueintaka verði þar sem allra tryggust verður að binda not þeirra við lestrarsal eingöngu, eins og fram kemur í frv.

Þá er enn rétt að minna á að með ráðstöfun eins eintaks til Háskólabókasafns er í fyrsta lagi litið á brýna þörf Háskóla Íslands til að hafa jafnan sem greiðastan aðgang að hverju einu, bæði stóru og smáu, vegna rannsókna hvers konar, en jafnframt er nauðsynlegt að eitt safn, ef ríka nauðsyn ber til, geti léð öðrum söfnum og stjórnsýslustofnunum innanlands íslenskt efni og einnig léð erlendum söfnum sem hingað kunna að snúa sér með bókalán þegar svo stendur á.

Við 1. umr. þessa máls á síðasta þingi var á það bent að söfn, sem áður hafa notið hlunninda af skyldueintökunum, misstu nokkurs í við samþykkt þessa frv. Þetta var alveg rétt ábending. Það er því nauðsynlegt eða a. m. k. æskilegt að frv. um almenningsbókasöfn verði afgreitt um líkt leyti og þetta frv., því að það frv. um almenningsbókasöfnin á að styrkja stöðu þeirra og gæti þá tekið við þar sem þá fyrirgreiðslu þrýtur er einstök söfn hafa notið í sambandi við skylduskil. En hitt er svo, að ég tel a. m. k., að varla sé stætt á því að gera almennum útgefendum prentaðs máls að láta af höndum 12 eintök endurgjaldslaust af sérhverju riti sem þeir gefa út, eins og nú er mælt fyrir um í lögum yfir höfuð. Ég tel ekki stætt á því lengur og því síður sem þyngst hefur fyrir fæti hjá íslenskri bókaútgáfu á síðustu árum alveg tvímælalaust.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni umr. vísað til hv. menntmn.