23.10.1975
Sameinað þing: 7. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í B-deild Alþingistíðinda. (119)

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Forseti (Ásgeir Bjarnason) :

Umræðan skiptist í tvær umferðir, þannig, að í fyrri umferð hefur forsrh. til umráða allt að hálfri klukkustund og fulltrúar annarra þingflokka en forsrh. 20 mín. hver. Í síðari umferð hefur hver þingflokkur 14 mín. til umráða. Röð flokkanna verður þessi: Í fyrri umferð: Sjálfstfl., Alþb., Framsfl., Alþfl. og SF. Í síðari umferð: Framsfl., Alþb., Sjálfstfl., SF og Alþfl. Ræðumenn auk forsrh. verða þessir: Af hálfu Sjálfstfl. talar Lárus Jónsson, 4. þm. Norðurl. e., í síðari umferð. Af hálfu Alþb. talar Ragnar Arnalds, 5. þm. Norðurl. v., í fyrri umferð og Geir Gunnarsson, 11. landsk. þm., í síðari umferð. Af hálfu Alþfl. talar Benedikt Gröndal, 2. landsk. þm., í fyrri umferð og Gylfi Þ. Gíslason, 9. þm. Reykv., í síðari umferð. Fyrir Framsfl. talar Ólafur Jóhannesson dómsmrh. í fyrri umferð og Vilhjálmur Hjálmarsson menntmrh. í síðari umferð. Af hálfu SF talar Karvel Pálmason, 5. þm. Vestf., í fyrri umferð og Ólafur Ragnar Grímsson, 3. landsk. þm., í síðari umferð. — Hefst þá umræðan og tekur hæstv. forsrh., Geir Hallgrímsson, til máls.