19.12.1975
Neðri deild: 44. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1531 í B-deild Alþingistíðinda. (1249)

Þingfrestun

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):

Þar eð telja má víst að þetta verði síðasti fundur þessarar hv. d. fyrir jól vil ég leyfa mér að þakka hv. þdm. fyrir gott samstarf það sem af er þessu þingi. Sömuleiðis vil ég þakka skrifstofustjóra Alþ. og starfsliði öllu fyrir gott starf og gott samstarf við mig. Ég leyfi mér að óska hv. þdm. öllum gleðilegra jóla og þeim, sem þurfa að fara heim til sín um langan veg, óska ég góðrar heimferðar og góðrar heimkomu. Ég óska öllum þdm. og starfsliði Alþ. heillaríks nýs árs og þakka samstarf á liðnu ári og óska þess að við sjáumst öll heil á hinu nýja ári.