19.12.1975
Neðri deild: 44. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1531 í B-deild Alþingistíðinda. (1250)

Þingfrestun

Karvel Pálmason:

Virðulegi forseti. Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka góðar óskir forseta okkur til handa. Ég þakka forseta góða fundarstjórn og samvinnu það sem af er þessu þingi og óska honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og góðs komandi árs. Ég vil einnig færa skrifstofustjóra og starfsliði öllu í þinginu þakkir fyrir gott og ánægjulegt samstarf og óska því og fjölskyldu þess gleðilegrar jólahátíðar og góðs komandi árs. Ég vænti þess að við hittumst öll hér heil á komandi ári. Ég vil biðja þdm. að taka undir þessar óskir með því að risa úr sætum. — [Þdm. risu úr sætum.]