19.12.1975
Efri deild: 44. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1532 í B-deild Alþingistíðinda. (1258)

Þingfrestun

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Þar sem þetta er síðasti fundur Ed. fyrir þingfrestun leyfi ég mér að þakka öllum hv. þdm. fyrir góða og ánægjulega samvinnu. Ég óska hv. þdm. gleðilegra jóla og góðs og farsæls komandi árs. Sömu óskir færi ég skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsfólki þess. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu. Ég vænti þess að við hittumst hér allir heilir á næsta ári.