19.12.1975
Sameinað þing: 37. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1533 í B-deild Alþingistíðinda. (1262)

128. mál, frestun á fundum Alþingis

Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :

Herra forseti. Ég mæli hér með fyrir till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþ. skv. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Svo sem efni till. gerir ráð fyrir, þá er farið fram á samþykki Alþ. að fundum þingsins verði frestað frá 20. des. 1975 eða siðar, ef henta þykir, enda verði það kvatt saman á ný eigi síðar en 26. jan. 1976. Um efni þessarar till. hefur verið haft samráð við formenn þingflokkanna, og ég vonast til að hún hljóti fylgi þm. og sé ekki ástæðu til að gera till. um að henni verði vísað til nefndar.