20.12.1975
Sameinað þing: 38. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1594 í B-deild Alþingistíðinda. (1300)

1. mál, fjárlög 1976

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Þar sem einkaaðilum hefur þegar verið heimilað að halda bingó í auglýsingatíma Ríkisútvarpsins sjálfum sér eða jafnvel sínum málstað til framdráttar, þá sé ég enga ástæðu til annars en að leyfa þessari stofnun, sem á í miklum fjárhagsörðugleikum og verður annars að velta sínum útgjöldum yfir á almenning, að reyna það, ef hún gæti eitthvað létt fyrir sér á þennan hátt. Þessi hugmynd er ekki sprottin upp hér í þessum sal, heldur komin lengra að, frá þeim sem best þekkja til. Ég segi já.