20.12.1975
Sameinað þing: 38. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1596 í B-deild Alþingistíðinda. (1309)

Þingfrestun

Lúðvík Jósepsson:

Ég vil fyrir hönd okkar alþm. þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir og hlý orð í okkar garð. Ég vil jafnframt þakka honum fyrir gott samstarf við okkur alþm. og fyrir góða og réttláta fundarstjórn. Ég óska hæstv. forseta og fjölskyldu hans gleðilegrar jólahátíðar og góðs og farsæls komandi árs. Ég bið alla alþm. að taka undir óskir mínar til forseta og þakklæti til hans með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]