26.01.1976
Sameinað þing: 39. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1603 í B-deild Alþingistíðinda. (1315)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Ásgeir Bjarnason) :
Mér hefur borist eftirfarandi bréf:
„Reykjavík, 26. jan. 1976.
Lúðvík Jósepsson, 2. hm. Austurl., form. þingflokks Alþb.hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem Stefán Jónsson, 5. þm. Norðurl. e., dvelst nú erlendis í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér skv. beiðni hans og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Norðurlandi e., Soffía Guðmundsdóttir húsfrú á Akureyri, taki sæti á Alþ. í fjarveru hans.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Eggert G. Þorsteinsson,
forseti efri deildar.“