28.01.1976
Neðri deild: 46. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1636 í B-deild Alþingistíðinda. (1349)

138. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Með frv. á þskj. 298 er leitað eftir heimild Alþ. til að framlengja frest skv. 16. gr. 1. nr. 46/1973, sbr. 1. gr. l. nr. 90/1975, enn um skeið til þess að betri tími gefist til þess að ná samkomulagi í yfirstandandi deilumáli milli fjmrh. og BSRB. jafnframt er ríkissáttasemjara skv. frv. veitt heimild til þess að leita sátta milli aðila til 7. mars 1976 ef annar hvor aðili óskar þess.

Með 1. nr. 90/1975 var þágildandi frestur framlengdur um einn mánuð.

Ástæðan fyrir frestunarbeiðni þessari nú er sú, að aðilar eru sammála um að reyna til þrautar að ná samkomulagi, en sá tími, sem nú er eftir til ráðstöfunar af gildandi fresti, er fyrirsjáanlega of skammur.

Frv. er flutt í samkomulagi við BSRB, og skv. venju hefur slíkum frv. ekki verið vísað til nefndar. Form. þingflokkanna hefur verið gerð grein fyrir þessu frv.

Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og vænti þess að hægt verði að haga svo afgreiðslu þessa máls, að það geti orðið að lögum í dag.