28.01.1976
Efri deild: 46. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1637 í B-deild Alþingistíðinda. (1358)

138. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :

Herra forseti. Með frv. á þskj. 298 er leitað eftir heimild Alþ. til að framlengja frest samkv. 16. gr. l. nr. 70 1973, sbr. 1. gr. l. nr. 90 1975 um einn og hálfan mánuð til þess að betri tími gefist til þess að ná samkomulagi í yfirstandandi deilumálum milli fjmrh. og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Jafnframt er ríkissáttasemjara veitt heimild, ef frv. verður að lögum, til að leita sátta milli aðila til 7. mars 1976 ef annar hvor aðili óskar þess.

Með l. nr. 90 1975 var þágildandi frestur framlengdur um einn mánuð.

Ástæðan fyrir frestunarbeiðni þessari nú er sú, að aðilar eru sammála um að reyna til þrautar að ná samkomulagi, en sá tími, sem nú er eftir til ráðstöfunar af gildandi fresti, er fyrirsjáanlega of skammur. Frv. er því flutt samkv. samkomulagi við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, og samkv. venju hefur slíkum frv. ekki verið vísað til n. Form. þingflokka hefur verið gerð grein fyrir máli þessu.

Herra forseti. Ég legg til, að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr., og vænti þess að hægt verði að ljúka afgreiðslu þess í dag, þannig að það geti orðið að lögum, en eins og hv. þdm. er kunnugt hefur Nd. lokið 3. umr. um málið nú fyrir skemmstu.