03.02.1976
Sameinað þing: 43. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1668 í B-deild Alþingistíðinda. (1379)

27. mál, atvinnuleysistryggingar

Fyrirspyrjandi (Axel Jónsson) :

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans og sérstaklega þar sem hann víkur að því að þessi merkilegu mál og nauðsynjamál séu í áframhaldandi skoðun. Ég endurtek það, sem ég sagði hér áðan, að þessi viðbótarkvöð á Atvinnuleysistryggingasjóð hlýtur eðlilega — og það hljóta allir að skilja — að verða þess valdandi að ráðstöfunarfé hans til þess að sinna tímabundnum vandamálum þar fyrir utan verður minna en áður var.