10.02.1976
Neðri deild: 52. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1829 í B-deild Alþingistíðinda. (1509)

147. mál, Stofnfjársjóður fiskiskipa

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason) :

Virðulegi forseti. Ég vísa til formála þess er ég flutti í sambandi við frv. til l. um útflutningsgjöld af sjávarafurðum, um leið og ég mæli með frv. því til l. um Stofnfjársjóð fiskiskipa sem hér er til umr. Frv. þetta er samhljóða drögum, sem tillögunefndin um sjóði sjávarútvegs og hlutaskipti gerði, en efni þess er að gjald til Stofnfjársjóðsins lækki og verði 10% af verðlagsráðsverði sjávarafla við heimalandanir, en 16% við landanir erlendis, en nú er gjaldið 15% og 21%. Með frv. þessu er lagt til, að inn í lög um Stofnfjársjóðinn verði sett ákvæði um tekjur sjóðsins, og eru þá öll ákvæði um hann, um tekjur og um ráðstöfun fjár úr honum, felld inn í ein lög, en nú eru tekjuákvæðin í öðrum lögum. Við samþykkt þessa frv. yrðu úr gildi numin öll eldri lög varðandi Stofnfjársjóðinn og þar með öll ákvæði varðandi hann í eldri lögum, en gert er ráð fyrir að ákvæðum þeirra verði breytt frá 16. febr. n. k. Varðandi frekari upplýsingar vísa ég til aths. með frv. og til skýrslu sjóðanefndarinnar, en legg til að frv. verði vísað að lokinni 2. umr. til hv. sjútvn.