12.02.1976
Efri deild: 53. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1890 í B-deild Alþingistíðinda. (1567)

147. mál, Stofnfjársjóður fiskiskipa

Frsm. (Steingrímur Hermannsson) :

Herra forseti. Sjútvn. hefur haft til meðferðar frv. til l. um Stofnfjársjóð fiskiskipa og skilar áliti á þskj. 327. N. mælir með því, að frv. verði samþ. óbreytt, en ég held að það hafi fallið niður og verður leiðrétt, ef ég fer skakkt með, að Stefán Jónsson væri þar með fyrirvara. En n. mælir með samþykkt frv. óbreytts. Þarf ég ekki að bæta neinu við það sem um þetta mál hefur áður verið sagt, enda málið náskylt því sem hér hefur verið til umr., 148. máli.