23.02.1976
Sameinað þing: 54. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2033 í B-deild Alþingistíðinda. (1691)

166. mál, vantraust á ríkisstjórnina

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Umræðan fer þannig fram, að hver þingflokkur fær til umráða 30 mín., er skiptast í tvær umferðir, 15–20 mín. í þeirri fyrri og 10–15 mín. í hinni síðari. Röð flokkanna verður þessi: Í fyrri umferð: Alþb., Sjálfstfl., Alþfl., Framsfl. og SF. Í síðari umferð: Alþfl., Framsfl., SF, Sjálfstfl. og Alþb. Ræðumenn verða: Fyrir Alþb. í fyrri umferð Ragnar Arnalds, 5. þm. Norðurl. v., í síðari umferð Lúðvík Jósepsson, 2. þm. Austurl. Fyrir Sjálfstfl. í fyrri umferð Geir Hallgrímsson forsrh., í síðari umferð Gunnar Thoroddsen iðnrh. Fyrir Alþfl. í fyrri umferð Benedikt Gröndal, 2 landsk. þm., í síðari umferð Gylfi Þ. Gíslason, 9. þm. Reykv. Fyrir Framsfl. í fyrri umferð Einar Ágústsson utanrrh., í síðari umferð Ólafur Jóhannesson dómsmrh. Fyrir SF í fyrri umferð: Magnús T. Ólafsson, 3. landsk. þm., í síðari umferð Karvel Pálmason, 5. þm. Vestf. — Hefst nú umr. og tekur fyrstur til máls hv. 1. flm., Ragnar Arnalds, 5. þm. Norðurl. v., og talar af hálfu Alþb.